Súkkulaðihringir, pestó og döðlumauk
PANTA VÖRUR
Hér er hægt að senda inn pöntun ef þú vilt kaupa vörur beint frá okkur.
Þú getur líka sent okkur línu á annamarta@annamarta.is og við sendum þér vörur um hæl.
Vefverslunin hér opnar fljótlega.
VÖRURNAR OKKAR
UM FYRIRTÆKIÐ
Anna Marta er matvöru- og lífstílsfyrirtæki stofnað af Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur árið 2019. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til djúprar ástríðu hennar fyrir hollum mat, hreyfingu og góðum lífsvenjum. Tvíburasystir hennar Lovísa gekk til liðs við fyrirtækið árið 2022 sem gæðastjóri. Saman framleiða þær náttúrulegar matvörur úr hreinu gæðahráefni.
Anna Marta býður einnig uppá námskeið í matarþjálfun, líkamsþjálfun og upplifun fyrir hópa.

FYLGDU OKKUR Á INSTAGRAM

Náttúrulegt og ferskt
Hjá Önnu Mörtu eru framleiddar ferskar, hollar og náttúrulegar matvörur úr hágæða hráefnum án allra aukaefna. Fyrirtækið leggur áherslu á að vörurnar séu bæði ljúffengar og aðlaðandi og færi fólki vellíðan og jákvæða upplifun. Allar vörurnar eru unnar í höndunum í fageldhúsi með ströngum gæðaeftirlitsstöðlum.
Matarþjálfun
EINSTAKLINGSRÁÐGJÖF MEÐ ÖNNU MÖRTU
Sérhannað prógram fyrir þá sem vilja breyta mataræði sínu og auka lífsgæði með hreinni og næringarríkri fæðu.
Á þínum forsendum
Þú færð stuðning, þjálfun og matarprógramm sem hentar þér og þínu lífi. Þetta er algjörlega á þínum forsendum. Anna Marta er stuðnings- og aðhaldsbolti sem hjálpar þér inn á rétta braut.
Falleg og næringarrík fæða
Ég hjálpa þér að breyta þeim hlutum í þínum lífstíl sem eru ekki endilega að þjóna þér og koma inn með nýjar og nærandi venjur.


HRINGUR TROPIC
HRINGUR Tropic er fullur af sætum trönuberjum, stökkum salthnetum, sólkjarna- og graskersfræjum og ljúffengum kókos. Hugmyndin varð til fyrir mörgum árum þegar okkur langaði í eitthvað sætt og hollt. Útkoman varð svo ljúffeng og falleg að við vildum deila gleðinni. Súkkulaðisætbiti sem slær í gegn.
Upplifun
ÆVINTÝRI BRAGÐLAUKANNA
Námskeið í matreiðslu á hreinu og fersku hráefni þar sem gleði og núvitund umlykja matinn. Frábær kvölstund með fræðslu, matreiðslu og upplifun með matgæðingnum Önnu Mörtu.
Hentar 20 manna hópum eða stærri.
