Karfa

Tóm

Skoðaðu þessar vörur

Grillaður pestókjúklingur

Grillaður pestókjúklingur

4 kjúklingabringur 

4 msk. pestó ANNA MARTA 

4 msk. lime-safi

1 msk. sambal oelek

SALAT

1 avókadó, skorið í teninga

1 bolli kirsuberjatómatar, skornir til helminga

1 msk. lime-safi

gróft salt og pipar eftir smekk 

Búið til marineringu með því að blanda saman pestói, lime-safa og sambal í skál. Setjið kjúklingabringurnar í marineringuna og látið standa í 1 klst. eða lengur, má vera sólarhringur. Grillið kjúklinginn.

Skerið niður avókadó og tómata, látið lime-safa yfir og kryddið með salti og pipar. Smakkið til og berið fram með kjúklingnum. 

 

Undirbúningur: 20 mín 

Fyrri
Næsta