Karfa

Tóm

Skoðaðu þessar vörur

Fettuccine pasta með kjúkling

Fettuccine pasta með kjúkling

Tvíbbos mæla með þessum pastarétt sem bráðnar einfaldlega upp í manni😍🤌🏽

Það sem þú þarft:

1 pk ferskar kjúklingabringur (4 bringur )
1 pk ferskt Fettuccine pasta 250 gr

Sósa:

2 stk meðalstór skalottlaukur
1 stk geiralaus hvítlaukur
½ l matreiðslurjómi
1 krukka PESTÓ SÓL frá ANNA MARTA
Ólífuolía
Grænmetiskraftur
Salt og pipar

Aðferð👩‍🍳

  • Kjúklingur skorin í hæfilega munnbita, steiktur á pönnu með góðri ólífuolíu, kryddað eftir smekk.
  • Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  • Sósan, saxið skalottlaukinn og hvítlaukinn smátt.
  • Ólífuolía og hluti af olíunni frá Sól pestóinu hituð í potti, laukurinn látin brúnast örlítið í olíunni þegar það er klárt þá bæta Sól pestóinu við og grænmetiskrafti.
  • Látið malla aðeins, svo er rjómanum bætt við hrært vel við vægan hita þar til byrjar að sjóða.
  • Leyfið sósunni að sjóða í fimm mínútur og hrærið af og til í á meðan.
  • Sósan er bragðbætt með grænmetiskrafti, salt og pipar.
  • Bætið kjúklingnum í sósuna og hellið sósunni yfir pastað.
  • Mælum með ferskri basiliku, tómötum og rifnum parmesan osti til að toppa réttinn.
Fyrri
Næsta