Karfa

Tóm

Skoðaðu þessar vörur

PESTÓ Lasagna

PESTÓ Lasagna

PESTÓ lasagna 💚🤌🏽

  • 1 kg kjúklingabringur skornar niður í litla bita
  • 1 krukka PESTÓ ANNA MARTA
  • Ferskar lasagna-plötur
  • 2 box cherry tómatar skornir í tvennt
  • Rifinn ostur mozzarella
  • Gróft salt
  • Sítrónupipar eftir smekk
  • 3 msk grísk jógúrt
Pestó sósa
  • 3 msk Grísk jógúrt
  • 2 msk PESTÓ
    Hrærið þessum tveimur hráefnum saman

Aðferð:

  • Kjúklingabringur skornar niður í litla bita
  • Setjið 2 msk af PESTÓ á pönnu og steikið kjúklingabringurnar
  • Gott að setja gróft salt og sítrónupipar yfir.
  • Hitið ofninn í 180°C og stillið á blástur og undirhita.
  • Dreifið í eldfast mót kjúklingabringum, lasagna plötum, PESTÓ sósunni, cherry tómötum og rifnum osti.
  • Endurtakið í 2-3 hæðir, fer eftir stærð mótsins.
  • Bakið í ofni í um það bil 30 mínútur.
  • Njótið vel!🫶🏽
Fyrri
Næsta